2.7
Meðhöndlun úrgangs
Rekstraraðili skal fylgja verklagi Isavia um úrgangsflokkun og takmarka úrgang sem fellur til.
Markmið Isavia er að 2025 nái hlutfall flokkaðs úrgangs 55% og 70% árið 2030.
Eitt af markmiðum Isavia er að leggja áherslu á góða nýtingu auðlinda, lágmörkun úrgangs og aukna endurvinnslu.
Rekstraraðilar eru ábyrgir fyrir því að losa sig við úrgang á næsta endurvinnslurými úrgangs og fylgja leiðbeiningum um flokkun.
Umbúðir/endurvinnsluefni þurfa að vera hrein til að hægt sé að endurvinna þau. Því er mikilvægt að tæma og hreinsa matarleifar úr umbúðum, annars skal setja þær í blandaðar úrgang.
Rekstraraðilar eru sjálfir ábyrgir fyrir förgun á húsgögnum, stærri raftækjum, búnaði og öðru sem fellur utan daglegs reksturs.
Ekki er heimilt að skilja eftir úrgang eða búnað á gólfi á endurvinnslurými.
Ekki er heimilt að geyma úrgang eða búnað fyrir utan rými rekstraraðila.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar, vinsamlegast hafðu samband á umhverfi@isavia.is
2.7.1
Úrgangsflokkun rekstraraðila

Óendurvinnanlegur úrgangur, t.d. einnota hanskar, uppsóp, penslar og límband.

Allur bylgjupappi, millispjöld af vörubrettum og hreinir pítsukassar.

Plastumbúðir hreinar, plastfilmur, pokar, bakkar utan af mat og brúsar.

Allar ljósaperur.

Allir matarafgangar, kaffikorgur, tepokar og munnþurrkur safnað í pappírspoka.

Allir málmar, t.d. kaffikútar, niðursuðudósir, járngrindur, hnífapör.

Allt brotið gler, glerflöskur og glerumbúðir
Postulín

Allt brotið postulín og borðbúnaður. Athugið að gler og postulín má ekki setja saman.

Öll úr sér gengin raftæki t.d. skjáir og lyklaborð, símar, smærri heimilstæki og tölvur. Rekstraraðilar sjá sjálfir um förgun á stærri raftækjum.

Allar rafhlöður. Setjið rafhlöður beint í söfnunartunnu fyrir rafhlöður.

Efnavörur sem eru í hættumerktum umbúðum og umbúðirnar sjálfar, olía og olíumengaður úrgangur (t.d. olíumengaðar tuskur), málning, lakk og leysiefni (þynnir).

2.7.2
Úrgangsflokkun verktaka
Verktakar eru ábyrgir fyrir því að fylgja leiðbeiningum um úrgangsflokkun Isavia; flokka úrgang og losa samkvæmt skipulagi í Grænás.
Ekki er heimilt að skilja eftir úrgang eða búnað á göngum eða endurvinnslurýmum.
Markmið Isavia er að 2030 nái hlutfall flokkaðs úrgangs 70% og leggja áherslu á góða nýtingu auðlinda, lágmörkun úrgangs og aukna endurvinnslu.

Vörubretti, byggingatimbur, smíða- og harðviður og heflaður viður.

Allt málað, gagnvarið eða plasthúðað timbur, mótatimbur, krossviður, límtré, tjörusoðinn krossviður, parket, pallaefni, trétex og spónarplötur.

Allt gifs.

Allur bylgjupappi, millispjöld af vörubrettum og hreinir pítsukassar.

Plastumbúðir hreinar, plastfilmur, pokar, bakkar utan af mat og brúsar.

Allir málmar, t.d. kaffikútar, niðursuðudósir, járngrindur, hnífapör

Allt brotið gler, glerflöskur og glerumbúðir

Allt brotið postulín og borðbúnaður.

Efnavörur sem eru í hættumerktum umbúðum og umbúðirnar sjálfar, olía og olíumengaður úrgangur (t.d. olíumengaðar tuskur), málning, lakk og leysiefni (þynnir)

Efnavörur sem eru í hættumerktum umbúðum og umbúðirnar sjálfar, olía og olíumengaður úrgangur (t.d. olíumengaðar tuskur), málning, lakk og leysiefni (þynnir).

Grófir/stórir hlutir úr mörgum samsettum efnum, t.d. húsgögn og dýnur, þakpappi, einangrun og teppi, MDF.