2.12
Lagnir
Vatnslagnir og frárennsli
Isavia sér um inntak fyrir kalt og heitt vatn og frárennsli inn í rými resktraraðila. Rekstraraðili ber sjálfur ábyrgð á lagningu lagna vegna reksturs.
2.12.1
Vatnsúðakerfi
Vatnsúðakerfi í rými rekstraraðila er stjórnað af brunakerfi flugstöðvarinnar. Ef þess þarfnast að gera einhverjar breytingar á því t.d. vegna búnaðar sem trufla úðakerfið þarf það að gerast með leyfi Isavia og á kostnað rekstraraðila.