Fara á efnissvæði

1

Kynning

Handbók þessi veitir almennar upplýs­ingar um atriði sem nýtast rekstr­ar­að­ilum í daglegri starf­semi sinni á Kefla­vík­ur­flug­velli og bætir samstarf okkar allra. Mikil­vægt er að rekstr­ar­að­ilar kynni sér þær upplýs­ingar sem hér eru að finna. Innihald þeirra leiðbeininga sem fram koma í handbók þessari eru gildar frá útgáfudegi, samt sem áður eru allar síður handbókarinnar ávallt í endurskoðun.

Við fögnum öllum ábend­ingum um þessa handbók, heima­síðu okkar og samskipti okkar á milli. Endi­lega láttu okkur vita hvernig við getum bætt okkur með því að hafa samband við þinn full­trúa.

Ef þörf er á skýringum eða frekari upplýsingar um það efni sem fjallað er um í þessari handbók skal hafa samband við tengilið. Sé rekstraraðili ekki viss um skyldur sínar gagnvart samningi sínum, þá mælum við með því að rekstraraðili sæki faglega ráðgjöf frá lögfræðingi sínum eða öðrum hæfum einstaklingi.

Innihald þeirra leiðbeininga sem fram koma í handbók þessari eru gildar frá útgáfudegi, samt sem áður eru allar síður handbókarinnar ávallt í endurskoðun.

Nánari upplýsingar má sjá á vef Isavia og tengiliður rekstraraðila getur veitt frekari aðstoð og ráðgjöf. 

 

  1. Velkomin á Keflavíkurflugvöll
  2. Fyrirtækjamenning Isavia
  3. Stefna Isavia
  4. Sjálfbærnisstefna Isavia
  5. Orðskýringar
  6. Hafðu samband
  7. Staðarreglur